Styrktarsjóður Bel Canto styður unga og efnilega söngvara til frekari sigra á sinni vegferð. Allur ágóði af Bel Canto tónleikunum, ásamt árlegu uppboði ómetanlegra muna úr tónlistarsögunni, rennur í sjóðinn.
Til að styðja af myndarleik hefur félagið hafið samstarf við La Musica Lirica á Ítalíu, sem stendur fyrir öflugum þjálfunarbúðum óperusöngvara. Í bænum Nova Feltria eru settar upp þrjár óperur á sérstakri sumarhátíð í júní og júlí ár hvert, þar sem ungir söngvarar fá hlutverk og dýrmæta reynslu. Þannig getur sjóðurinn bæði stutt listamanninn fjárhagslega og tryggt honum þjálfun á heimsmælikvarða erlendis. Kristján Jóhannsson hefur verið aðalkennari La Musica Lirica um árabil og situr í valnefnd sem velur söngvara í búðirnar.
Söngvarar eru valdir í kjölfar áheyrnarprufa. Þeir sem standa sig best komast áfram í áheyrnarprufur fyrir skólann og einn eða tveir koma fram á næstu Bel Canto tónleikum. Sjóðurinn hefur nú þegar stutt þrjá unga söngvara í vegferð sinni.
Efnilegir söngvarar eru hvattir til að sækja um. Sendu hljóðprufu ásamt stuttu kynningarbréfi á info@belcanto.is.